Saturday, March 23, 2013

Körfuboltabúðir Hauka

Körfuknattleiksleiksdeild Hauka mun verða með körfuboltabúðir fyrir krakka í 1.-10. bekk núna í dymbilvikunni. Körfuboltabúðirnar verða með svipuðu sniði og verið hefur þar sem áherslan er lögð á bolta- og skotæfingar.
Yfirþjálfari búðanna verður Pétur Ingvarsson fyrrum þjálfari mfl. hjá Haukum og Hamri. Honum til aðstoðar verða Ívar Ásgrímsson, yfirþjálfari yngri flokka og leikmenn mfl. Hauka verða á staðnum til að leiðbeina og kenna.

* Er fyrir alla krakka, stelpur og stráka í 1. – 10. bekk
* Þrír dagar, mánudagur til miðvikudags (25. – 27. mars)
* Frá kl. 12:00 – 15:00
* Allir fá páskaegg í lokin
* Verð kr. 3.000
* Skráning verður við mætingu á mánudaginn

No comments:

Post a Comment