Tuesday, June 4, 2013

Æfingar í sumar fyrir yngri flokka körfuknattleiksdeildar

 
Krakkar fæddir 2000 – 1996
Mánudaga, þriðjudaga og fimmtudaga frá kl. 16.00 – 18.00 á Ásvöllum. 

Þessar æfingar verða með hefðbundnu sniði eins og verið hefur síðustu tvö sumur.  Æfingar byrja fimmtudaginn 13. Júní og þá verður líka skráning.  Verð verður auglýst nánar síðar.

Yfirþjálfari verður Ívar Ásgrímsson.


Monday, June 3, 2013

Kæru foreldrar og iðkendur

Hauka bjóða upp á metnaðarfullt afreksstarf sem samanstendur af Afreksskóla
Hauka, fyrir 8.-10. bekkinga, og svo Afrekssviði Hauka fyrir
bæði framhaldsskólanema og aðra metnaðarfulla íþróttamenn sem vilja meira.
Allir fæddir 2000 og eldri geta sótt um og fyrri umsóknarfrestur er milli 3.-17. júní. Ef ástæða þykir til þá verður opnað aftur fyrir umsóknir milli 1.-10. ágúst. Þann 15. ágúst fá umsækjendur svör við sinni umsókn.

Kynnið ykkur vel allar upplýsingar sem eru að finna á skráningarsíðunni:
Sæktu um inn á Afrekslínu Hauka - HÉR