Monday, October 29, 2012

Stigaskor fjölliðamót 1



                   fjölnir    umfn    umfg   KR     samtals
Fannar          1     2     4    5     12
Anton           6     2                   8
Siggi         
Gunnar         4            7    2      13
Dagur
Diddi
Kári J          24   22    29   16   91
Jói
Jón Þ            2             2     1     5
Biggi           9                     4    13
Jón O          13    2      6    12    33
Kári K
Ágúst                  2             1      3
Jens



Pétur

Friday, October 26, 2012

Ekki æfing á laugardaginn

Æfing á laugardaginn 27. október fellur niður, næsta æfing verður því mánudaginn kl. 15.30 á Ásvöllum.
Við erum svo með æfingu á þriðjudaginn 30. október á Ásvöllum kl. 19.20-21.00.

Minni á að það eru einungis 3 vikur í næsta fjölliðamót og ganga frá æfingagjöldum sem allra fyrst, annars hafa menn ekki keppnisrétt í næsta móti.

Stigaskor frá fjölliðamóti 1 kemur um helgina.

Leikur hjá mfl. karla föstudaginn 26. október, Haukar-Þór Ak. kl.19.15.



Pétur

Tuesday, October 23, 2012

Skotæfing

Miðvikudaginn 24. október verður skotæfing á Ásvöllum frá 13.00-14.15, allir að mæta og fá smá skotæfingu (3ja og vítaskot).

Ekki æfing um kvöldið, næsta æfing á fimmtudaginn 25. október kl. 17.00 í Bjarkarhúsinu.


Pétur

ÆFINGAGJÖLD – ÍTREKUN

Kæru forráðamenn
 
Þeir sem ekki hafa greitt æfingagjöld barna sinna fyrir 1.nóv. fá ekki að keppa fyrir hönd félagsins.
 
Sjá leiðbeiningar á haukar.is.
 
Með bestu kveðju, íþróttastjóri

Monday, October 22, 2012

þriðjudagur og miðvikudagur

Þriðjudaginn 23. október verður skotæfing á Ásvöllum kl. 13.00-14.00, mætið ef þið getið.

Miðvikudaginn 24. október verður ekki æfing.  Næsta æfing verður fimmtudaginn 25. október í Bjarkarhúsinu kl. 17.00.


Pétur

Thursday, October 18, 2012

Fjölliðamót 20.-21. október

Laugardaginn 20. október verður spilað í Hagaskóla, mæting kl. 10.30.

11.15 Haukar-Njarðvík
13.45 Haukar-KR

Sunnudagur 21. október verður spilað í DHL höllinni, mæting kl. 9.30.

10.00 Haukar-Fjölnir
12.30 Haukar-Grindavík


Pétur

Tuesday, October 16, 2012

Æfingagjöld

Kæru forráðamenn

 
Nú þurfa þeir sem eiga eftir að ganga frá æfingagjaldi fyrir barnið sitt að gera það sem allra fyrst.
Nú er það svo að eftir því sem líður á þá lækkar niðurgreiðslustyrkurinn sem í boði er frá bænum og þá þurfið þið forráðamenn góðir að greiða hærri upphæð.

Best er að fara í gegnum hafnarfjordur.is – mínar síður og klára að ganga frá greiðslu þar, munið að haka við þar sem stendur „Nota íþrótta- og tómstundastyrk“.
 
Mikilvægt er að ganga frá æfingagjaldi síns barns fyrir 1. nóv. Eftir það gildir sú regla, sem tekin var í notkun nú á þessu tímabili, að þeir iðkendur sem ekki hafa verið skráðir og greidd æfingagjöld fyrir, hafa ekki heimild til að taka þátt í mótum/leikjum á vegum félagsins. Þetta er gert til að allir sitji við sama borð varðandi greiðslu æfingagjalda.

Einnig minni ég á að hægt er að skipta æfingagjaldi í allt að 11 mánuði hvort sem er með greiðsluseðlum eða á kreditkort.
 
 
Með von um jákvæð viðbrögð,
Guðbjörg Norðfjörð
Íþróttastjóri Hauka

Sunday, October 14, 2012

Æfing á mánudaginn 15. okt

Við verðum með æfingatíma frá 15.30 til 17.10 á mánudaginn á Ásvöllum, 11. flokkur fékk frí á æfingu.

Mót um helgina 20.-21. október í DHL höllinni hjá KR.

Laugardagur:
13.30  Haukar-UMFN
16.00  Haukar- KR

Sunnudagur:
10.00  Haukar-Fjölnir
12.30  Haukar-UMFG

Pétur

Monday, October 8, 2012

Miðvikudagur 10. október

Æfing á Ásvöllum kl. 21.00, mættir amk. 15 mín fyrr.

Mót helgina 20. - 21. október.

Minni á æfingu svo fimmtudaginn kl. 17.00 í Bjarkarhúsinu.



Pétur

Saturday, October 6, 2012

Ekki æfingaleikur

Vegna karate-móts verður ekki æfingaleikur við Breiðablik í dag. Ætlum að skoða hvort það sé möguleiki að spila við þá næstu helgi.

Næsta æfing er mánudaginn kl 15.30.

Fyrsta mót vetrarins verður 20.-21. október.


Pétur

Thursday, October 4, 2012

Laugardagur 6.október

Æfing á laugardag verður kl. 14.30 á Ásvöllum.

Allir að mæta, láta vita ef þið komið ekki.

Á sunnudaginn verður svo æfingaleikur við Breiðablik kl. 12.00 í Smáranum.


Pétur

Monday, October 1, 2012

Miðvikudaginn 3. október

Smá breyting verður á æfingatíma miðvikudaginn 3. október en þá erum við á æfingu kl. 21.00-22.00 á Ásvöllum (11.flokkur verður með okkur.

Frestaði æfingaleikurinn við Breiðablik verður sunnudaginn 7. október kl 12.00.

Allar breytingar á æfingatímum verða uppfærðar hér á blogginu svo ég hvet ykkur til þess að vera duglegir að fylgjast með á þessari síðu.



Pétur