Næsta mánudag, 4. febrúar koma Breiðablik í heimsókn og spila við okkur æfingaleik sem er góður undirbúningur fyrir næsta fjölliðamót sem verður helgina 9.-10. febrúar.
Við erum með æfingu á morgun miðvikudaginn 30. janúar á Ásvöllum kl. 19.30-20.30,
algjör skyldumæting og á æfinguna fimmtudaginn 31. janúar í Bjarkarhúsinu kl. 17.00-18.00.
Ef þið komist ekki á æfingu látið mig vita í síma 897 7979 eða petur@aslandsskoli.is
Kæru forráðamenn Næstkomandi þrjá þriðjudaga verða haldnir opnir fyrirlestrar sem eru tilvaldir fyrir alla áhugasama Haukaiðkendur og foreldra og/eða aðstandendur þeirra. Fyrstu tveir fyrirlestrarnir voru haldnir sl. vetur og þurfti að endurtaka þá þar sem færri komust að en vildu. Það verður því aftur boðið upp á þá, auk nýs fyrirlesturs um hæfileika og það hvernig þeir verða til. Fyrirlesari er Kristján Ómar og verða fyrirlestrarnir í hér á Ásvöllum.
Fyrirlestradagskrá:
Þriðjudagurinn 29. janúar kl. 20:00-21:00 Betri matarvenjur = betri í íþróttum og betri einkunnir
Þriðjudaginn 5. febrúar kl. 20:00-21:00 Fæðubótarefni - eitthvað fyrir íþróttaunglinginn?
Þriðjudaginn 12. febrúar kl. 20:00-21:00 Hvernig verða hæfileikar til?
Föstudaginn 18. janúar á 10.flokkur
bikarleik við UMFG í Grindavík kl. 20.00.
Þeir sem eiga að mæta
eru;
Kári J
Fannar
Gunnar
Jón Otti
Biggi
Jón Þórir
Ágúst
Árni
Anton
Dagur
Hilmar
-Mæting
á Ásvelli kl. 18.30 -Það þarf að koma
liðinu til Grindavíkur og foreldrar þurfa því að keyra (3-4 bílar)
endilega látið mig vita hverjir geta keyrt í síma 897 7979 eða petur@aslandsskoli.is
Á þriðjudögum kl. 18.30-19.30, á 10. flokkur tíma í lyftingasalnum á Ásvöllum.
Ef að þið eruð ekki duglegir að mæta þá er núna tíminn til þess að byrja. Undir handleiðslu mjög góðra þjálfara fáið þið grunnkennslu í styrktarþjálfun sem er algjörlega nauðsynleg til þess að taka áframhaldandi framförum.
Næsta æfing er svo kl. 21.00-22.00 á miðvikudaginn á Ásvöllum.